Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með innlendum og erlendum sérfræðingum sem eiga erindi við fagfólk í lýsinga-, hljóð- og myndlausnum ásamt sviðstækni, kvikmyndagerð og sjónvarpsframleiðslu.
Bransadagurinn er einstakt tækifæri fyrir tæknifólk til að hittast, deila fróðleik og fræðast um nýja tækni.
Innifalið í miðaverði er aðgangur að fyrirlestrum og vörusýningu frá samstarfsaðilum auk þess sem boðið verður upp á hádegismat og svo hressingu að dagskrá lokinni.
Skerpa – félag tæknifólks niðurgreiðir miða fyrir félagsfólk og kostar þá miðinn aðeins 4.000 kr.
Afsláttarkjör gilda til 31.12.2025.
Félagsfólk Skerpu fær sendar upplýsingar um miðakaup með afslætti í tölvupósti 1.nóvember 2025 í þau netföng sem eru skráð á Mínum síðum á rafis.is
Auk þess gefst vinnustöðum tækifæri til magnkaupa á miðum fyrir starfsfólk sitt á sérkjörum, þar eru lágmarkskaup 10 miðar og hægt að hafa samband við siggarosa@bransadagurinn.is