Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með innlendum og erlendum sérfræðingum sem eiga erindi við fagfólk í lýsinga-, hljóð- og myndlausnum ásamt sviðstækni, kvikmyndagerð og sjónvarpsframleiðslu.
Bransadagurinn er einstakt tækifæri fyrir tæknifólk til að hittast, deila fróðleik og fræðast um nýja tækni.
Innifalið í miðaverði er aðgangur að fyrirlestrum og vörusýningu frá samstarfsaðilum auk þess sem boðið verður upp á hádegismat og svo hressingu að dagskrá lokinni.
Félag tæknifólks niðurgreiðir miða fyrir félagsfólk og kostar þá miðinn aðeins 4.000 kr. Afsláttarkjör gilda til 31.12.2024.
Allar upplýsingar um hvernig má nýta sér þau kjör eru á mínum síðum https://thjonusta.rafis.is/mysite/login
Auk þess gefst vinnustöðum tækifæri til magnkaupa á miðum fyrir starfsfólk sitt á sérkjörum, þar eru lágmarkskaup 10 miðar og hægt að hafa samband við ragnargg@ftr.is.